fimmtudagur, júní 29, 2006

Heimsins besta súkkulaðikaka :)

Já ég er að baka, köku númer 2, gerði eina í gærkvöldi og svo aðra núna. Ég geri víst bestu súkkulaðiköku sem til er :) Og þar sem mamma og pabbi eru að fara í viku göngu með 18 manna hóp og vantaði súkkulaðiköku fyrir hópinn þá var náttúrulega pantað hjá mér :)

En ef ykkur langar að vita hvað er í henni þá er það nú ekki flókið....

120 gr. sýrður rjómi
2 egg

1 dl matarolía
2,5 dl vatn
120 gr. smjör/smjörlíki, brætt

320 gr. hveiti
350 gr. sykur
3 mtsk kakó
1 tsk matarsódi
hálf tsk salt
vanilludropar

Kafli 1 hrært saman, kafli 2 pískað saman og sett í 1, þurrefnum blandað útí.

Þetta er svo bakað í tveimur eða þremur formum í svona hálftíma til klukkutíma, hún hefur aldrei brunnið hjá mér, þó ég hafi nú stundum gleymt mér í slatta tíma :)

Gangi ykkur vel :)

Þegar við sjáum galla í fari annarra skulum við reyna að bæta okkur sjálf.
- Bengt Lijeblad