Afmæli !
Litla snúllan mín hélt uppá afmælið sitt í dag og bauð vinkonum sínum úr leikskólanum ásamt einni frænku. Hún á reyndar ekki afmæli fyrr en 18. júlí en þá eru allir í sumarfríi, og við úti, þannig að eina ferðina enn var ákveðið að skipta þessu í nokkur afmæli. Eitt núna, annað úti á réttum degi, og svo eitt fjölskylduafmæli þegar við komum heim.
Hún var annars rosalega ánægð, sagði að þetta hefði bara verið stórt afmæli. Núna má ég ekki hjálpa henni með neitt, svarið sem ég fæ er bara: "ég er nú orðin fimm ára !" Þá getur maður allt sko. Bakaði handa þeim litlar pizzur, rosa góðar, og svo mína frægu súkkulaðiköku. Og þeim fannst þetta bara rosa flott.
Svo er bara að fara að pakka um helgina.
One person caring about another represents life´s greatest value.
- Jim Rohn

