Footloose
Já ég bauð dóttur minni á Footloose í gærkvöldi, fyrir góðan árangur í skólanum sínum. Hún var með 10 í nánast öllu, í 12 fögum var hún með 10, örfáum 9,5 og svo enn færri 9.
Sýningin var mjög skemmtileg, við sátum framarlega fyrir miðju, þannig að við sáum vel. Fullt af lögum og dönsurum sem var gaman að horfa á og svo var maður náttúrulega búin að sjá þessa mynd fyrir löngu síðan.
Það var uppselt á sýninguna og slatti af fólki þarna sem maður kannaðist við. Við fórum nokkur í vinnunni minni, bæði Herbalifinu og Garðlist, þannig að þetta var bara gaman.
Þórhildur var hjá vinkonu sinni á meðan og var nú orðin frekar þreytt þegar við komum til baka, ég hélt á henni yfir, háttaði hana og hún var sofnuð á innan við mínútu eftir að ég var búin að lesa fyrir hana. Alveg búin bara.
Svo er bara rétt rúm vika núna í utanlandsferðina okkar, það verður gaman, rosalega er tíminn fljótur að líða. En svona er þetta :)
Meira seinna :)
Njótið dagsins.
Time is more valuable than money. You can get more money, but you can't get more time.
- Jim Rohn

