Heiðarleiki
Já ég tel mig vera mjög heiðarlega. Ég stend við það sem ég segi, það er hægt að stóla á mig, alltaf tilbúin ef einhver þarf á mér að halda. Þannig að, já er ég ekki rosalega heiðarleg. EN, svo fór ég að hugsa, við erum kannski heiðarleg gagnvart náunganum, en hversu heiðarleg erum við gagnvart okkur sjálfum ! Ég get alveg viðurkennt það að ég hef sagt sjálfri mér hluti sem ég hef ekki staðið við, ákveðið að gera eitthvað en hef svo ekki staðið við það. Þannig að það er spurning, afhverju erum við heiðarlegri gagnvart náunganum heldur en okkur sjálfum. Við ættum kannski að prófa að hugsa um okkur sjálf sem "náungann" og sjá hvort við stöndum þá ekki við öll þau heit og ákvarðanir sem við höfum sett okkur :)
Hversu heiðarleg eruð þið í raun og veru ?
Find someone who is willing to share the truth with you.
- Jim Rohn

